


Leigurými kynnir: Vandað og nýlegt 56,3 fm atvinnuhúsnæði til leigu að Brúarfljóti 3A, Mosfellsbæ (bil 109).
Um er að ræða afar vel skipulagt og bjart iðnaðarbil í vönduðu límtréshúsi frá LímtréVírnet ehf. Húsið er klætt með steinullar-yleiningum sem tryggja góða einangrun og hljóðvist. Eignin hentar frábærlega fyrir hvers kyns léttan iðnað, verkstæði, lager eða sem vönduð geymsla fyrir tæki og tól.
Helstu kostir eignarinnar:
Frábær lofthæð: Lofthæðin er 4,0 metrar þar sem hún er lægst en fer yfir 6 metra þar sem hún er hæst. Býður upp á mikla möguleika á millilofti(samkomulag)
Stór innkeyrsluhurð: Hurðin er um 4,0 m á breidd og 3,5 m á hæð, sem tryggir auðvelt aðgengi fyrir stærri tæki og sendibíla. Gengið er inn um sér inngangshurð við hliðina.
Góð innri aðstaða: Gólf eru steypt og vélslípuð. Inn af aðalsal er snyrtileg salernisaðstaða (salerni og vaskur) ásamt sér ræstivaski. Hurðir og gluggar eru úr viðhaldsfríu, hvítu PVC.
Framúrskarandi athafnasvæði: Lóðin er 6.397 fm iðnaðar- og athafnalóð. Plan er fullbúið, malbikað og með góðum vatnshalla og niðurföllum. Alls eru 70 sameiginleg bílastæði á svæðinu sem tryggir gott athafnarými.
Frábær staðsetning í kraftmiklu atvinnuhverfi í Mosfellsbæ þar sem stutt er í stofnbrautir.
Nánari upplýsingar veitir Halldór fasteignasali í síma 618-9999 eða á halldor@leigurymi.is.
