




Laust rými fyrir þinn atvinnurekstur:
Til leigu, skrifstofu/verslunarhúsnæði í Hlíðasmári 19, 201 Kópavogur, nánar tiltekið um 714 m² á 1. hæð og kjallara á góðum stað við Hlíðasmára. Einnig kemur til greina að selja húsnæðið í heild sinni.
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sérinngang með rennihurð inn í anddyri. Þaðan er gengið inn í stórt opið vinnurými. Þar eru 7 lokaðar skrifstofur, gott lokað fundarherbergi, snyrting og tvær skjalageymslur. Kerfisloft og ný led lýsing er í lofti. Steinteppi er á gólfi 1. hæðar. Í kjallara er fullbúið eldhús og mötuneyti. Gluggar eru í rýminu. Þrjú salerni og búningsaðstaða með sturtu. Dúkur á gólfi. Gott aðgengi fatlaðra er að 1. hæð. Ekki leggst virðisaukaskattur á leigufjárhæð. Staðsetning húsnæðisins hefur mikið auglýsingagildi því samhliða því liggur ein mesta umferðargata landsins. Eignin er mjög miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu og mjög stutt í allar helstu umferðaræðar.
Til greina kemur að skipta rýminu upp í minni einingar.
Upplýsingar í síma veitir Halldór Kristján Sigurðsson fasteignasali s:6189999 e-mail halldor@leigurymi.is
